Egill Finnbogason

Hef ekki uppfært hérna í LANGAN tíma núna.

Allaveganna, er svo sem allt fínt að frétta af mér.

Ég er fluttur aftur í bæinn, og byrjaður að vinna í 10-11 Hjarðarhaga og það er alveg ágætt svo sem.

Maður er bara að reyna að koma sér í jólaskapið núna. Er ennþá að bíða eftir því að fá að vita hvenær ég kemst í frí upp á það að fara til eyja. 

Þessi mánuður hefur liðið ógurlega hratt. Þetta er ekkert eins og þetta var hér í gamla daga þegar að síðustu þrjár vikurnar fyrir jól, liðu hægar heldur en allt haustið. 

Ætla að reyna að halda mig við þetta blogg núna og blogga næst allaveganna innan 3 mánaða. :p 

Frí!Egill Finnbogason

Já maður er loksins kominn í frí....Loksins!

Það er samt ekki alveg sokkið inn að maður þarf ekki að mæta í vinnu næsta mánuðinn í hið minnsta.

Þetta hefur verið ágætis síðasta vika, að utanskildu því að þurfa að heilsa upp á lækninn.

Ég fékk blóð í hægðir og verið með einhverjar meltingartruflanir og fór því í blóðprufu, rassasskoðun(ughhhhh, en hey þetta er verra fyrir lækninn en mig) og svo er ég að taka sýni af saur svo þeir geti kíkt á hann og svoleiðis gaman.

En jæja nóg um það.

Ætlunin er að kíkja upp á land í byrjun næstu viku. Foreldranir koma heim eftir þjóðhátíð og þau vilja draga mig með sér eitthvað að flakka áður en þau fara heim.

Það er bara fínt, ég hef alveg gaman að því að ferðast um Ísland.

Ég er ekki með neitt annað plannað svo sem í þessu fríi, eiginlega bara hugsað mér að slappa af.

Maður getur það samt ekki alveg strax, maður þarf að taka til hendinni hérna heima og gera allt fínt aftur. Þetta er samt ekkert rosalega mikið sem þarf að gera.

En já.....uhhh....já einmitt...hef ekkert meira að segja..

blehEgill Finnbogason

Er heima veikur eins og er, mikið gaman eða þannig.

Get huggað mig við það að það eru aðeins rúmar tvær vikur í að maður kemst í sumarfrí, hef ekkert ákveðið hvað ég ætla að gera af mér en það verður líklegast ekkert merkilegt svo sem, bara afslöppun og rólegheit þó það er ekkert útilokað að maður skelli sér í ferð um landið með foreldrunum.

Peningastaðan hjá mér er fín þannig að maður ætti ekkert að lenda í neinum vandræðum með það í fríinu, það er mun betra að velta 300þúsund kalli á undan sér í staðinn fyrir að vera í stöðugri skuld eins og maður var í þegar maður bjó í Reykjavík.

Ég væri líka örugglega ekkert í góðum málum þessa daganna sökum versnandi lífskjara á Íslandi og reyndar bara í heiminum.

Aldrei á ég eftir að geta skilið allt þetta viðskiptadót sem er að rústa hagkerfinu í heiminum, en vonandi þá er þetta bara tímabundið og leysist innan nokkurra ára, ekki eitthvað sem á bara eftir að fara versnandi og versnandi.

Jæja ég fæ bara meiri höfuðverk af því að spá í þessu, látum gagnslausa þingmenn spá í þessu frekar, rétt eftir að þeir eru hættir að spá í einhverju tilgangslausu eins og hvort Ráðherra ætti að nota um kvenkyns þingmenn líka.

- Egill

Skálað goslokum.Egill Finnbogason

Jæja þá er Goslokahátiðin yfirstaðinn.

Þetta var fínasta helgi hjá mér.

Á föstudeginum þá fór ég til hennar Hönnu þar sem margir fjölskyldumeðlimir mínir sem komu um helgina voru einnig.

Þar var boðið upp á ýmsa austurlenska réttir og voru þeir bara mjög góðir enda kann hún ýmislegt fyrir sér í eldhúsinu hún Hanna.

Eftir það var farið út á sólpall og þar var djúsað, sungið og spjallað. Ég fékk mér tvo bjóra og smávegis smakk af tópas og varð ágætlega léttur.

En sökum þess að ég hafði lítið sofið nóttina áður og hafði þurft að vakna snemma í vinnu þá sofnaði ég upp úr miðnætti, aðrir fóru niður í skísvusund.

Á laugardeginum þá fór ég í kjötsúpu hjá Hönnu. Eftir það var hlustað á smá tónlist og dansað og svoleiðis dót. Maður skellti í sig þrem bjórum og smakkaði gin, tequila og eitthvað annað sem ég man ekki hvað er. Tequilað var viðbjóður en restin bragðaðist ágætlega.

Eftir það fórum við niður í skívsusund þar sem við spjölluðum og dönsuðum og sungum og svoleiðis eins og svo sem allir aðrir. Siggi var orðinn vel fullur og ég var mun drukknari en ég hef nokkurn tímann verið þarna, það sást alveg á manni að maður hafði verið að drekka en svo þegar leið á nóttina þá rann af mér.

Svo lenti maður í því að kona kom aftan að mér og byrjaði að kyssa mig út úr engu það var af því að hún þekkti mig af því að systir mín hafði verið á sóla...

Ég held hún hafi verið alveg ágætlega í glasi hehe

Eins og ég sagði, þetta var fín helgi og það var gaman að djúsa,spjalla og djamma með liðinu.

Þó þarf ég að nefna að sonur eins sem maður varð dauðadrukkinn og þurfti að bera heim eftir að hafa komist í áfengi á 67 einhvern veginn og hann er pottþétt ekki orðinn 18, frekar 16 ára.

Þessi krakkar í dag...tsk tsk, þetta var ekki svona þegar ég var ungur Glottandi

En annars er það að frétta að ég er orðinn einn í kotinu og er það bara fínt. Það er gott að fá ró og næði öðru hverju.

Maður fær loksins að nota 37" sjónvarpið sem ég á fram í stofu, það er venjulega of upptekið til að ég geti notað það eitthvað að ráði en allavega núna um stundarsakir getur maður leyft sér það. Svo tek ég það auðvitað með mér þegar ég flyt...þar að segja ef mér tekst að finna eitthvað hér í bæ til að flytja í...

- Egill


Úrslit ljós.Egill Finnbogason

Já Spánverjar eru orðnir Evrópumeistara í Fótbolta og óska ég þeim til hamingju með að hafa loksins tekist það.

Þeir hafa verið að bíða lengi og því eru örugglega mikið af fagnaðarlátum í gangi núna á Spáni. Enda hefur maður ekki getað skilið það hingað að Spánn geti lítið þegar í úrslitakeppnina er komið, þegar að á blaðið þá eru þeir með einhvern breiðasta og besta hóp af heimsklassaleikmönnum sem til er og hafa alltaf haft.

En jæja það tókst og maður samgleðst þeim sérstaklega þar sem afi og "stjúp"amma mín eru bæði fótboltaáhugamenn og eiga bæði heima í Barcelona.

....hef lítið annað segja svo sem þannig að hérna er bara eitthvað myndband.

 



Það er ekki hægt að gera annað en að elska þetta. :)

- Egill

Ég búin er að puða og púla.Egill Finnbogason

Júlí nálgast óðum og það styttist í frí hjá manni.

Djöfull verður gott að komast í frí... enda eins og sagt er í textanum þá er maður búin að puða og púla síðustu mánuðina að undanskildu vikufríi sem ég tók í byrjun júní til að nýta frítökuréttinn og helgar utanlandsferðinni minni til Bandaríkjanna í Mars.

Ég er ennþá að íhuga hvort maður eigi að skella sér á þjóðhátíð, ég hef ekki farið á eina slíka svo svakalega lengi núna, alveg kominn 10 ár núna að á maður bara nokkuð eftir að þekkja hana lengur..

En ég kíki allavega á goslokahátiðina um næstu helgi enda á ég von á að fullt af fjölskyldu liði kíki í heimsókn og því verður glatt á hjalla.

Það verður pottþétt ölað eitthvað og það er bara fínt, ég hef einmitt hugsað mér að drekka smá sjálfur. Ég hef nefnilega komist að því að það gengur ekkert fyrir mig að vera edrú í partíum og þvíumlíku. Mér líður bara illa og hef ekkert gaman, en svo þegar maður er búin að fá sér smá í glas þá breytist það allt. Ég hef það kannski tvo bjóra umfram það sem ég fær mér venjulega, ég efa að ég eigi eftir að fara í sterka dótið, enda langar mig ekkert að verða fullur, ég vill leysa um hömlurnar og slaka á sjálfum mér.

Maður skellti sér í þrek fyrr í dag og tók á þeim stóra sínum, ég er ekkert að ofreyna sjálfum mér en þetta tekur vissulega á. En þetta er líka byrjað gefa árangur, kominn undir 136 kílóin, vúúúú!
Þetta eru nú bara nokkur hundruð grömm en hey þetta er bara eftir nokkur skipti í líkamsrækt hehe.

Það er reyndar ekkert óeðlilegt að maður léttist vel fyrst um sinn, enda þegar maður er svona þungur þá er það eitt að labba rösklega á bretti álíka mikil orkueyðing og hlaup hjá meðalmanni myndi ég halda þar sem það tekur virkilega á að lyfta þessum þyngslum.

Hef ekki hugmynd um hvað ég á að gera í kvöld....ætli maður fari ekki út að labba og horfi á eitthvað á eftir eða spili einhvern leik það kemur bara í ljós.

Það eru tónleikar hjá Dans á rósum..en meh.

Svo líka langar mig að geyma djammið þangað til um næstu helgi frekar.

Bæ í bili.



Sambandsleysi...Egill Finnbogason

Netid er dautt hjá mér eins og er.
Ég er að skrifa þetta með símanum. Mikið skelfilega tekur maður eftir því núna hvað maður er háður netinu þegar það er ekki til staðar.


Allaveganna þetta var fín dagur. Vinnan var bara ágæt og dagurinn leið alveg ágætlega hratt. Eftir vinnu þá kom ég við í geisla og keypti eitt stykki viftu og er hún að hjálpa mikið í þessum hita. Èg fór ekki þrek í dag en maður kíkir á morgun, í staðinn skellti ég mér í göngu og fór síðan á leik með íbv. Íbv vann 2-1. Áfram íbv! Ég ætla að athuga á næstunni hvort það er hægt að fá einhverja íbúð á eyjunni. Èg þoli ekki lengur að gista á hótel mömmu.. Ekki eftir að hafa lifað einn það er bara miklu betra.. Spurning samt hvernig besta leiðin til að finna eitthvað er.......

Netið komið í lag...jibbý jey!

*setja flott færslu heiti hér*Egill Finnbogason

Verkjar allstaðar.

Var að koma heim úr þreki. Það er svo greinilegt að formið mitt er vægast sagt orðið hræðilegt að það hálfa væri nóg, ég labbaði/skokkaði í tæpar 50 mínútur á hlaupabrettinu og svo tók ég tíu ferðir í sundi og svo í heitu pottana.

Hvort sem ég fer upp á land eða ekki þá ætla ég allavega að fara í þrek og ef ég held mig við það þá ætti ég að vera orðinn bara nokkuð vel settur ekki eftir það langan tíma.
Ég man að þegar ég var í handboltanum þá var ég oft fleiri klukkutíma á mismunandi æfingum mörg kvöld í röð, allt frá þriðja upp í fyrsta flokk og tók ég jafnvel körfubolta æfingar sem voru eftir klukkan 10 á kvöldin.

Rosalega hafði maður mikið meiri orku á þessum þarna tíma, ég er að vona að ég geti allavega endurheimt eitthvað af þessu með því stunda þrek og svo kannski líta inn á æfingar hjá þeim í handboltanum.

Ég byrjaði svo sem á sama stað, fyrst þegar ég byrjaði í handbolta. ég var í ömurlegu formi og fyrstu æfingarna sem ég var í tóku alveg rosalega á, ég var með harsperrur allstaðar í líkamanum eftir þær..en svo léttist róðurinn, ég var reyndar töluvert yngri á þessum þarna tíma en það er ekki eins og maður sé gamall kall í dag.

Þetta er bara spurningin um að komast yfir þröskuldinn og þá ætti þetta að byrja ganga betur.

Ég hafði bara hugsað mér að taka því rólega í kvöld eftir þessa fyrstu þrekæfingu. Hún tók mikið að orku, enda þegar maður er kominn í 136 kílóin þá er hvert skref sem maður tekur þvílík orkueyðsla.

Reyndar verð ég reyndar að nefna að 136 kíló er ekkert of slæmt, þegar ég flutti aftur til eyja fyrir ári síðan þá var ég um 150 kíló þannig að maður hefur tekið sig mikið á síðan þá, en ég verð ekki sáttur fyrr en ég kem mér niður í um og kannski rétt yfir kjörþyngd sem í mínu tilfelli er um 100-110 kíló sem var einmitt þyngdin sem ég hafði náð þegar ég var í handbolta. Ég held það lægsta sem ég náði var 106 kíló, að komast eitthvað lægra reyndist vera virkilega erfitt.

En jæja maturinn bíður maður verður víst að næra sig eitthvað eftir þetta.

Vangaveltur um framtíðina.Egill Finnbogason

Ég er mikið að spá í því þessa daganna hvað ég á að gera. Spurningin er hvort maður eigi að vera áfram í Eyjum eða prófa að fara aftur í bæinn.

Báðu fylgja kostir og gallar.

Kostir þess að vera í eyjum, eru náttúrulega fyrst og fremst að maður er á besta staðnum sem fyrirfinnst á íslandi og ég held að allir sannir Vestmannaeyingar séu sammála því. Hér hefur maður einnig fjölskylduna í nálægð sem er alltaf gott ef eitthvað bjátar á, enda er alltaf hægt að finna stuðning þar fyrir hverju sem maður sækist eftir að gera. Það er auðvelt fyrir mig að fá vinnu niður í Vinnslustöð enda er maður í klíkuskapnum þar sem mamma er yfirmaður í saltfiski.

Ókostirnir eru þeir að ég er frekar einmana á eyjunni þar sem eiginlega allir vinir mínir eiga heima upp á landi og því hefur maður oft lítið til stafns að gera fyrir utan vinnu og hangsa heima fyrir framan tölvuna. Hinn ókosturinn er að það er ekkert brúklegt bíó hérna..Ég veit að það er svo sem ekkert eins mikilvægt og hitt, en ég myndi vilja geta komist á sumar myndir í bió en maður getur það ekki oft vegna annríkis í vinnu svo maður kemst ekki upp á land og svo getur veður líka sett strik í reikninginn þar sem ég verð mjög auðveldlega veikur í Herjólfi að ég legg það ekki á mig að fara bara fyrir eina bíóferð. Kannski versti ókosturinn er vinnuúrvalið, mig langar helst ekki að vinna við fisk mikið lengur, ég vill ekkert festast í honum og svo getur vinnan verðið svo skelfilega tímafrek að jafnvel heilu mánuðina á ári þá er maður bara utan sambands við restina af heiminum.

Kostir þess að fara til Reykjavíkur eru þeir að ég gæti hangið meira með vinum mínum, farið í bíó, auðveldari aðgangur að ýmsu dóti sem ég kaupi reglulega svo sem DVD myndir og þvíumlíku og sólarhrings verslanir svo maður getur alltaf kíkt eitthvað ef manni vantar hluti.

Ókostirnir eru...að ég er ekki í Vestmannaeyjum, ég þyrfti að byrja að leita mér að vinnu, ég gæti svo sem komist að í gamla starfinu mínu hjá 10-11, hann Siggi frændi minn er verslunarstjóri fyrir þá en þau störf eru illa launuð og í þessu ástandi sem er í gangi núna þá væri ég ekki með mikinn pening á milli handanna að lifa á þessum launum. Ég hef verið í þeim sporum áður. Allt árið 2006 þá átti ég engann pening og lifði í stöðugri skuld, notandi visa kort og yfirdráttarheimildir. Það var ömurlegt að lifa svoleiðis þar sem maður hafði í rauninni aldrei efni á neinu og gat lítið leyft mér án þess að gjalda fyrir það seinna.

Þetta er staðan eins og ég sé hana núna.

Ég hafði upprunalega hugsað mér að flytja aftur í bæinn en svo byrjaði ég að spá í hvort það væri ekki sniðugra að finna mér eitthvað herbergi/íbúð til leigu í Vestmannaeyjum, sækja um fjarnám, vinna í líkamsforminu sem er komið í algjöra vitleysu eftir margra ára vanrækslu núna og misst niður góða formið sem maður var kominn í þegar maður stundaði handbolta. Allaveganna myndi ég reyna að komast að í íþróttamiðstöðinni og byrja að hlaupa og lyfta eitthvað sem mig hef lengi langað að drulla mér til að gera aftur og jafnvel þegar maður yrði orðinn þokalega hress aftur að leggja ástundun á handboltann aftur.

Mér líst í rauninni miklu betur á þessa hugmynd en hina..en ég er samt ekkert búin að ákveða með þetta. Það getur líka vel verið að fresturinn til að komast að í einhverju fjarnámi er liðin hjá og þá verður bara að hafa það og ég verð bara að vinna út úr því einhvern veginn öðruvísi.

Hvað finnst ykkur að ég eigi að gera?

- Egill

Fyrsta bloggfærsla.Egill Finnbogason

Jæja ég hef ákveðið að setja upp nýtt blogg.

Ég er nú þegar með bloggsíðu en sú síða er orðin of sérhæfð í umfjöllun um leiki og tölvur og svoleiðis til að ég geti verið að rabba um daginn og veginn og eitthvað sem er að gerast í lífinu eða bara almennt um pælingar mínar. Þar að auki er hún skrifuð á ensku meðan ég ætla að halda þessari skrifaðri á íslensku.

Hvað er annars að frétta af mér?

Jaaa lítið eitt, maður ætlar bara að slappa af eftir langt partístuð á árgangsmótinu í gær. Ég er þó ekki þunnur sem betur fer enda er ég ekki mikill drykkjumaður. Á þeim tólf tímum sem ég var þarna þá drakk ég í heild þrjá bjóra og höfðu þeir lítið annað en smá afslappandi áhrif á mann.

Leigði áðan Superbad sem ég ætla að horfa á um leið og ég er búin að skrifa þessu færslu. Ég sá hana aldrei á sínum tíma en maður hefur svo sem ekkert heyrt neitt slæmt um hana, og ég er einmitt í skapi fyrir svona léttar grínmyndir eins og þessa.

En annars hef ég lítð annað að skrifa um eins og er, þessar fyrstu bloggfærslur sem maður gerir eru oftast frekar innihaldslausar, ekki satt? :p

Ég segi þessu því bara lokið í bili.

Aðalvalmynd

Klukkan

Könnun

Á ég að flytja aftur í bæinn eða vera um kjurt í eyjum?

Innskráningar kubbur

Prófíll

  • Nafn: Egill Finnbogason
  • Staður: Vestmannaeyjar
  • Atvinna: Fiskvinnsla eins og er
  • Hjúskaparstaða: Laus og liðugur
  • Um mig: Fæddur og Uppalinn eyjapeyi.

Auglýsing

Nýjast á HumorPix

Funny Images, Before/After Elections Funny Images, When helmets make no sense Funny Images, I actually like some of them but I found this funny! Funny Images, Damn right Funny Images, When you see it… Funny Images, People who think outside the patterns are special!

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Leikur dagsins